Starfsemi Lundar var á árunum 1998 til loka 2002 byggð á þjónustusamningi við heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytið. Í ársbyrjun 2003 var tekið upp samræmt greiðslukerfi fyrir öll hjúkrunarheimili. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ákveður nú rekstrardaggjöldin. Á Lundi eru í dag 28 hjúkrunarrými og leyfi fyrir 2 þjónusturýmum. Til viðbótar eru 2 hvíldarpláss og 2 dagvistarpláss.
Á Lundi eru m.a höfð að leiðarljósi þau markmið 1.og 18. gr. laga um málefni aldraðra (sjá nánar vefsíðu Stjórnarráðins) að tryggja öldruðum sem þess þurfa vistun og umönnun á því þjónustustigi sem er eðlilegast og hagkvæmast miðað við þörf og ástand hins aldraða hverju sinni.
Samkvæmt lögum um málefni aldraðra skal heimilismönnum á Lundi tryggð samkvæmt rammasamningi milli hjúkrunarheimila og sjúkratrygginga Íslands sjá: https://www.sjukra.is/media/samningar/Rammasamningur-um-thjonustu-hjukrunarheimila.pdf
Lundur er aðili að Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu sem er samningsaðili við Sjúkratryggingar Íslands. Rammasamningur rann úr gildi 31. desember 2018 en unnið er að endurnýjun samnings.