Markmið hjúkrunar eru að:
• Veita hjúkrun sniðna að þörfum hvers og eins
• Styðja einstaklinginn til sjálfshjálpar
• Tryggja öryggi og vellíðan heimilisfólks
• Efla og viðhalda lífsgæðum heimilisfólks
• Viðhalda og treysta samband við aðstandendur
Hjúkrun heimilisfólks á Lundi fer fram í svokallaðri teymisvinnu og að henni koma hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og starfsfólk í aðhlynningu.
Hjúkrunarfræðingur setur fram einstaklingshæfða hjúkrunaráætlun sérsniðna að þörfum hvers og eins. Einnig hefur hver og einn einstaklingur sitt dagskipulag lagað að þörfum hans og óskum.
Á Lundi er lögð áhersla góð tengsl við aðstandendur. Hver einstaklingur hefur tengil stofnunar sem kemur úr röðum sjúkraliða sem er í góðu sambandi við tengil (aðstandanda) íbúans.
Mikilvægt er að líta ekki á Lund sem lokaða stofnun sem enginn fer út af þegar inn er komið. Að taka sína nánustu í bíltúr, búðarferðir eða heimsóknir á tyllidögum eða öðrum dögum er nokkuð sem gefur fólki mikið, bæði einstaklingnum og aðstandendum hans.
Heimilið leitast við á hverjum tíma að eiga öll helstu hjálpartæki sem völ er á til að létta aðhlynningu og auka öryggi einstaklingsins.